Ég á Facebook | Hafa samband | Veftré | Mín eldri síða
 
02.06.2022 - Ennþá meiri ánægja!

Það hefur alltaf verið vert að taka frá fyrsta fimmtudag hvers mánaðar um hádegið, borða góðan og ódýran mat í mötu-neyti IKEA, Garðabæ og hafa gaman með gömlum félögum frá Reykjaskóla, er útskrifuðust 1963. Við erum komin á þann aldur að við erum farin að skilja betur hvort annað en við gerðum hér áður fyrr.  Þá má ætla það, - 59 ár!  Ég veit ekki með ykkur, - en það er eins og uppvaxtarárin í Reykjaskóla 1961-3 séu mér eftirminnilegri en önnur, þó að öll skólaganga í öðrum skólum þar á eftir hafi verið góð.  Uppvöxturinn á yngri árum mótar manninn og Reykjaskóli á heiðurinn af því!  Nú vera að líða að 60 árum! Við Ágúst Þorgeirsson, Ketill Pálsson og Þorvaldur Böðvarsson, er kom akandi frá Hvammstanga og lét sig ekki vanta! Kom upp sú hugmynda að hafa "veglega" 60 ára útskriftarhátíð á næsta ári voru menn hrifnir að því.  



Þórir Steingrímsson | thorir@thorir.is